Refund policy
Skila- og endurgreiðslustefna
14 daga skilaréttur
Samkvæmt lögum um neytendasamninga nr. 16/2016 hefur þú rétt til að falla frá kaupum innan 14 daga frá því að þú móttekur vöruna, án þess að gefa upp ástæðu. Til að nýta skilaréttinn þarftu að tilkynna okkur um það innan 14 daga með tölvupósti á outdare@outdare.is
Skilyrði fyrir skilum
Til þess að skil séu tæk þurfa eftirfarandi skilyrði að vera uppfyllt:
- Varan sé ónotuð og í upprunalegum, óskemmdum umbúðum.
- Innsigli vörunnar sé óbrotið.
- Pöntunarnúmer fylgi með skilunum.
Mikilvægt um nikótínpúða
Vegna heilbrigðis- og hreinlætisástæðna fellur skilaréttur niður um leið og innsigli vöru er rofið, samanber 18. gr. laga nr. 16/2016. Þetta þýðir að ekki er hægt að skila opnuðum dósum af nikótínpúðum, jafnvel þótt aðeins hluti innihaldsins hafi verið notaður. Þetta gildir um allar nikótínvörur okkar á sömu forsendum.
Aldursskilyrði
Nikótínpúðar eru aldursbundnir og einungis seldir þeim sem eru 18 ára og eldri. Við áskiljum okkur rétt til að óska eftir skilríkjum við móttöku eða afhendingu pöntunar.
Hvernig skal standa að skilum
- Sendu okkur tölvupóst á outdare@outdare.is með pöntunarnúmeri.
- Þú fylgir skilaleiðbeiningurm hér.
- Pakkaðu vörunni á öruggan hátt og sendu á Dropp/Górilla vöruhús á Blikastaðavegi 2-8.
- Þegar varan berst okkur og uppfyllir skilyrði skila er andvirðið endurgreitt með sömu greiðsluaðferð og notuð var við kaup, innan 14 daga.
Sendingarkostnaður
Sendingarkostnaður vegna skila er á ábyrgð kaupanda, nema varan sé gölluð eða um sé að ræða mistök af okkar hálfu. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt kaupverð, nema vara sé á útsölu eða sértilboði á degi skila, en þá er miðað við verð vörunnar þann dag.
Gölluð eða röng vara
Sé vara gölluð eða ranglega send getur þú valið um:
- Nýja vöru í staðinn án viðbótarkostnaðar.
- Fulla endurgreiðslu á kaupverði ásamt sendingarkostnaði.
Tilkynna þarf um galla eins fljótt og auðið er á outdare@outdare.is og helst innan tveggja mánaða frá því að gallinn uppgötvaðist. Að öðru leyti vísast til laga um neytendakaup nr. 48/2003.
Endurgreiðslur
Endurgreiðslur fara fram með sömu greiðsluaðferð og notuð var við kaup, innan 14 daga frá því að við móttökum vöruna eða sönnun um sendingu hennar, hvort sem fyrr verður.
Hafðu samband
KOALI HEILDSALA EHF., kt. 4710250540, Netfang: outdare@outdare.is